Logo

Áskorunarvika ME 2023 fyrir Píeta

participants

10 Þátttakendur

Áskorunarvika virkar þannig að það geta allir nemendur innan skólans hvort sem það eru stakir einstaklingar, nokkrir saman, stærri hópar, nefndir og hvað sem er, komið með hugmynd um eitthvað til að gera. 🤩 Það getur verið t.d. fara að syngja í Nettó, fá sér lokka, aflita á sér hárið, fá sér tattú, borða 40 pizzusneiðar, eða bara hvað sem er (innan skynsamlegra marka). Síðan geta allir innan skólans og út í bæ lagt inn á þennan reikning og þegar ákveðinni upphæð hefur verið náð, verður sú gjörð framkvæmd sem var fyrir þann pening. Allur peningurinn sem safnast rennur til Píeta samtakanna sem að er virkilega mikilvægt málefni💗 Píeta veitir fyrstu hjálp, aðgengilega þjónustu, stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra🩷

59.388kr. safnað

Þessi viðburður var stofnaður 21. apríl 2023

B

Blædís Birna Árnadóttir

@blaedisbirna

59.388kr

safnað

10

Þátttakendur

Láttu orðið berast